Sælt veri fólkið
Það er margt sem gerðist þessa síðustu helgi.. Ég tók gamla tíman á þetta og djammaði á fimmtudagskvöld, föstudagskvöld og laugardagskvöld !!
Á fimmtudaginn var bjórkvöld í skólanum á Glaumbar og voru nokkrir bjórar drukknir
Svo á föstudaginn var nýnemadjamm í skólanum og voru busarnir í lyfjafræði pyntaðir smá !!
Svo á laugardaginn var partý hjá Maríu og svo var farið á 90´s ball á Nasa sem var geggjað 
Hann æðislegi bróðir minn fór til Svíþjóðar á laugardagsmorgun og kemur ekki heim fyrr en um jólin
Ég fékk bílinn minn á föstudaginn 
Alrún eignaðist æðislegan strák á miðvikudaginn
Dísa mín kemur á morgun !! 
Þá er það komið í bili.. Later Anna Kristín